Persónuverndarstefna
Síðast uppfært: 13.03.25
Hljómur leggur mikla áherslu á persónuvernd og öryggi viðskiptavina. Þessi persónuverndarstefna útskýrir hvernig við söfnum, notum, deilum og verndum persónuupplýsingar þínar þegar þú notar vefsíðuna okkar.
1. Hvaða upplýsingum söfnum við?
Við gætum safnað eftirfarandi upplýsingum frá þér:
1.1 Upplýsingar sem þú veitir okkur
- Nafn
- Netfang
- Heimilisfang og afhendingarupplýsingar
- Símanúmer
- Greiðsluupplýsingar (við vistum þær ekki sjálf, heldur eru þær unnar af öruggum greiðslugáttum)
1.2 Upplýsingar sem safnast sjálfkrafa
- IP-tala og tæknileg gögn (t.d. vafri og tæki sem þú notar)
- Heimsóknarsaga á vefsíðunni
- Kökur
2. Hvernig notum við upplýsingarnar?
Við notum upplýsingarnar til eftirfarandi:
- Til að afgreiða pantanir og veita góða þjónustu
- Til að senda þér staðfestingu og tilkynningar varðandi kaup
- Til að bæta notenda upplifun á vefsíðunni okkar
- Til að senda þér markaðsefni, fréttabréf og tilboð ef þú hefur samþykkt slíkt
- Til að greina heimsóknargögn og bæta vöru og þjónustu
Við seljum aldrei persónuupplýsingar þínar til þriðja aðila.
3. Hvernig deilum við upplýsingum?
Við deilum aðeins upplýsingum þegar það er nauðsynlegt til að veita þjónustu, svo sem með:
- Flutningsaðilum (til að skila pöntunum til þín)
- Greiðsluþjónustum (til að tryggja öruggar greiðslur)
- Auglýsinga- og greiningarþjónustum (t.d. Facebook og Google, ef þú samþykkir kökur)
Við tryggjum að allir þjónustuaðilar sem við vinnum með virði persónuvernd þína og meðhöndli gögn þín samkvæmt gildandi lögum.
4. Hvernig geymum við og verndum gögnin þín?
Við tökum öryggi gagna alvarlega og notum viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar þínar gegn óleyfilegum aðgangi eða breytingum.
Gögn eru geymd á öruggum netþjónum og við notum dulkóðun þar sem það á við (t.d. fyrir greiðsluupplýsingar).
Við geymum persónuupplýsingar aðeins eins lengi og nauðsynlegt er.
5. Réttindi þín
Þú átt rétt á:
- Að óska eftir afriti af þeim upplýsingum sem við höfum um þig
- Að leiðrétta rangar eða ófullnægjandi upplýsingar
- Að biðja um eyðingu gagna, nema lög krefjist annars
- Að afturkalla samþykki fyrir kökum hvenær sem er
- Að andmæla vinnslu persónuupplýsinga í ákveðnum tilfellum
6. Vefkökur og rakning
Við notum vefkökur (cookies) til að bæta upplifun þína á vefsíðunni. Meðal annars eru þær notaðar til:
- Að muna stillingar og óskir þínar
- Að greina umferð og bæta virkni síðunnar
- Að birta sérsniðnar auglýsingar (ef samþykkt er)
Þú getur stjórnað vefkökum í stillingum vafrans þíns.
7. Breytingar á persónuverndarstefnunni
Við áskiljum okkur rétt til að uppfæra þessa stefnu þegar þörf krefur. Breytingar verða birtar á vefsíðunni okkar og taka gildi við birtingu.
Ef þú hefur einhverjar spurningar, getur þú haft samband við okkur í gegnum:
- Netfang: hljomur@hljomur.is
- Sími: +354 7858564
Hljómur notar Facebook Pixel til vefmælinga og vefgreininga.